The Misses
Myndaalbúm fallega fólksins!
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
01.11.2006 16:48:04 / Miss K

Dagur hinna dánu!!!

Svaf út í dag fyrst að ég kemst ekki heim fyrr en á morgun.....svo upp úr þrjú hugsaði ég með mér að nota daginn og athuga hvort ég gæti ekki eytt smá pening fyrst ég fékk óvænt þennan auka dag.  Ég dríf mig út og rölti í átt að bænum og tek eftir því að nokkrar búðir voru lokaðar en jæja belgar eru skrítnir þannig að ég var ekkert að kippa mér upp við það enda eru sumar búðirnar LOKAÐAR á mánudögum.  Þegar ég er komin að helstu verslunargötunni sé ég að ALLAR búðirnar eru lokaðar og ég bara neeeeeei......helv..djö....enda ætlaði ég mér að kaupa mér bol fyrir ferðalagið á morgun þar sem öll fötin mín eru orðin svolítið dirty en welll ætli ég þurfi ekki að henda þá í vél. 

Ég ákvað síðan að fara í búð og kaupa í matinn en nei hún var líka lokuð þannig að ég rölti heimáleið og sá þar eina fataverslun og ákvað að kíkja inn.....þar náði ég að versla mér vettlinga og sjal í stíl:haha::haha: og ákvað að spurja í leiðinni afhverju í fjandanum allt væri lokað og þá sagði stelpan mér það að 1. nóvember væri "DAGUR HINNA LÁTNU" jáhá frábært sé fólk í anda heima hjá sér að hugsa til þeirra dánu hmmmm kannski er spurning um að við búum til einhverja svona daga heima þar sem mér finnst verslanirnar allt of mikið opnar.....ég meina það er lokað á 17.júní, jóladag, annan í jólum, nýársdag og páskadag kannski er ég að gleyma einhverjum degi en kommon 5 dagar á ári þar sem verslanir eru lokaðar og þá er ég EKKI að tala um matvöruverlslanir. 

Hér með skora ég á alþingismenn að byrja að búa til fleiri frídaga!!!

jæja ætla að íhuga í smá stund og fara svo að ná í þvottinn minn........later K

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2006 13:19:47 / Miss K

Helv.....fokking.....lestarkerfi my asss !!!

Þvílíkur horror morgunn sem byrjaði reyndar fínt.....Jón og Salem skutluðu mér á lestarstöðina og þar beið ég í hálftíma aðeins til að komast að því að hætt var við lestarferðina mína og næsta yrði eftir klukkutíma sem var orðið of seint fyrir mig þar sem það er 2 tíma ferð á flugvöllinn.  Þá fór ég að tékka hvort það væri einhver annar m-guleiki og þessi tussu elskulegi gaur í miðasölunni sagði bara "sorry"  !!!! Fór ég þá að kaupa símakort til að reyna að ná í jón en þessir kortasímar vöfðust eitthvað fyrir mér og sem betur fer náði ég í mömmu til að reyna að breyta fluginu mínu og stóð ég þarna grátandi algjörlega ein í útlandinu og vissi ekkert hvað ég ætti að gera þar sem ég var líka LÆST úti!!! 

Þá kom einhver maður sem sagði að ég gæti tekið lest með honum á aðra stöð og leigubíl þaðan á næstu og tekið lest þaðan og á flugvöllinn og ég ákvað að tala fyrst við þennan tussu gaur í miðasölunni til að tékka hvort það væri raunhæft enda hafði ég enn tíma til að ná fluginu en nei nei hann bara hmmm maybe if you are lucky then maybe you might get the train but it is very tight!!! já frábært æðislegt að heyra þannig að ég stökk upp í lest með þessum hjálplega manni en endastöðin var centralið en ekki stöðin sem við ætluðum á því það veit greinilega enginn neitt í sinn haus í miðasölunni.  Þá ákvað ég að reyna að finna internet til að geta hringt aftur í mömmu og eftir langt sveitt labb þá loksins fann ég eitt internet cafe hringdi í mömmu og hún gróf upp símann hjá Sölva sem býr rétt hjá Jóni því hann er með aukalykla af íbúðinni og þá hófst gangan til baka til að finna taxa og komast til Sölva.

Þannig að allt er gott sem endar vel en mikið djö...var ég fegin að komast aftur upp í íbúð......svo fæ ég 2 daga í viðbót with my Johnny þannig að það er allt gott og blessað en núna ætla ég að leggja mig og ná mér niðu eftir þetta (ekki) ferðalag hehe


Over and Out travelling Miss K



» 1 hafa sagt sína skoðun

27.10.2006 21:52:12 / Miss K

verlsa....versla......versla

Nú er maður bara komin til útlanda og búin að vera rúma viku JÍHAAA og búin að tæma búðirnar á no time hehehe Ég Sölvi og Jón skelltum okkur síðasta laugardag á RISA hönnunarsýningu í Kortrijk sem er borg klukkutíma frá Antwerpen í Belgíu.....bjuggumst ekkert við neinu svaðalegu en oh my lord þetta var huge 6 sýningarsalir og crazyness svo í kjallaranum var sýning ungra hönnuða sem var ótrúlega töff......svei mér þá að meiri hlutinn af dótinu þarna inni var flott allavega ef ég ætti hús og mætti taka það sem mig langaði í af sýningunni og setja í húsið mitt þá ætti ég ansi töff innbú!!!! það var allur andskotinn þarna sófar, stólar, ljós, lampar, hátalarar, gólfefni og bara everything......svo er ég auðvitað búin að kíkja á vini mína hjá Giovannis pizzza hehe en ekki hvað....og kíkja á frítt bjórkvöld á nýjum bar (reyndar var bjórinn nýbúinn þegar við komum :klikk:) skipti mig reyndar engu máli þar sem ég drekk ekki bjór euww svo er ég búin að fara svo oft í H og M að einn gaurinn sem vinnur þarna er farin að heilsa mér hehehe svo var Ramadan að klárast í fyrradag (hátíð múslima) og alveg rólegir á látunum shit hvað ég var orðin pirruð á einhverjum múslimum sem voru öskrandi fyrir utan gluggann (er reyndar á 5 hæð) kl 3 um nóttina það var bara allt að verða vitlaust.......á morgun er stefnan tekin á grillpartý með fleira góðu fólki í hollandi þannig að þá setur maður í partý gírinn enda verð ég að djamma einu sinni áður en ég fer heim það er bara algjör skylda :) en jæja ætlaði bara svona aðeins að updeita ykkur hafið það gott yfir helgina og Bobby minn farðu nú að slaka aðeins á hehehe og Hillz þú skuldar færslu sæta ;)

knús K

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 23:18:05 / Miss K

Hvað er málið???

Sælt veri fólkið

Nú er Íris farin :( Hún fór í gær kl fimm og lagði fólk niður vinnu milli 5 og 6 í gær...hehe
Svo var ég búin að ákveða að vera voða róleg um helgina...nota hana til að læra og þrífa og svona eitt og annað en nei nei er þá ekki bara staffapartý á kofanum og akureyringadjamm á hverfis á laugardagskvöldið össss ég má nú ekki láta mig vanta þangað enda byrja partýin ekki almennilega fyrr en missyin mætir á staðinn :):) djöfull þá fresta ég bara rólegheitunum þangað til helgina á eftir.......

Síðustu tvær vikur er ég búin að hafa þvílíkar yfirlýsingar um að nú verður tekið á því í ræktinni hehemm ég hef mætt einu sinni og búin að eiga árskort í 2 ár mætti síðast í febrúar (þetta kalla ég nýtingu) hmmm hef svo sem engar stórar áhyggjur af þessu því ég fæ ágætis hreyfingu á dansgólfum borgarinnar nánast hverja helgi......ætli eitt gott djamm sé ekki svona 3 skipti í ræktina yfir vikuna :haha: segjum það bara

Jæja læt þetta gott heita í bili hafið það sem allra best snúllurnar mínar og þið sem eruð á klakanum sé ykkur á hverfisbarnum í góðum gír :haha::haha:
Baby Kriss farin að sofa

» 3 hafa sagt sína skoðun

28.09.2006 23:28:31 / Miss K

FÓR Í BANKA...........EKKI BANKA!!!!

Jæja ég skulda víst eina góða langa færslu right:)   Hvar á ég eiginlega að byrja.....lifi svo hrikalega viðburðaríku lífi.

Fór í bústað yfir afmælishelgina mína með góðum hópi vinkvenna ( og nei ég veit hvað þig hugsið dónarnir ykkar)  þar var drukkið og étið ALLA helgina og fékk ég RISA súkkulaðitertu a la íris takk fyrir það:D plús skelltum við okkur í smá kappróður á vatninu ég og íris saman í liði og eva og begga saman þarf nú varla að taka það fram hverjar unnu þar sem sigurvegari er millinafn okkar írisar:haha::haha:

Svo er ég farin að vinna í banka að handfjatla peninga daginn út og daginn inn.

Næstu helgi kveð ég írisi þar sem hún er að fara til CAlí að hitta ykkur apaheilana 8)8) (eins gott að hún kaupi pakka handa mér) fyrst hún er að fara svona lengi.

Svo get ég ekki beðið því ég er sjálf að fara til útlanda eftir 2 vikur að hitta kallinn minn JÍHAA omg hvað ég ætla að eyða í H&M nærfatabúðinni úff ég svitna á efri vörinni við tilhugsunina.  

og Hildur mín í sambandi við könnunina þína þá get ég alveg sagt þér það að þetta er bara búið hjá þér ÞÚ ert MESTA guggan !!!! :haha::haha: það þýðir ekkert að reyna að endurtaka svona við fáum alltaf sömu niðurstöðuna. 

Bið að heilsa í bili Nos vemos! K



» 1 hafa sagt sína skoðun

16.09.2006 21:18:50 / Miss Hill

Framtíðardjammarinn!

Ég ætti kannski að tala um fortíðarjdammarann... Ég held að ég sé bara alveg að tapa mér,,, Mín er búin að vera rosalega löt undan farið við að fara út á lífið, og ég fæ að heyra það á hverjum degi frá Róbert hvað ég er ömurleg og leiðinleg og blablal, því ég vil aldrei gera neitt,, þannig að.,í gærkveldi ákvað ég askvaðandi að fara í dansskóna og gera mig sæta. Ég eldaði fyrir strákana og meira að segja bakaði brownie í eftirrétt, og bjó til nokkra kokteila til að koma okkur i stuð. Arnold ákvað þó að vera heima, þannig við Róbert skelltum okkur á klúbb sem heitir the Mood. eg var nú ekki búin með tvo kokteila heima þegar við förum á staðinn, við pöntum okkur vodka redbull og Róbert pantaði sér Tequilaskot, það var reyndar ekki skot, heldur borið fram í viskíglasi þannig þetta var annsi mikið tequila... hann tók einn pínulítinn sopa og ætlaði hreinlega bara að deyja... hann vildi þó ekki leyfa glasið og reyndi að gefa nokkrum einstaklingum tequilað sitt, enginn vildi það, en Róbert sleppti því ekki.. Við erum búin með drykkinn okkar og pöntum einhvern annan kokteil, róbert þarf að fara á klósettið eftir nokkra sopa af kokteilnum.. þá helti ég tequilanu í glasið hans og barþjónninn helti vatni í viskíglasið svo hann mundi ekki fatta það.. Róbert kom til baka og fattaði ekkert, og tók hann þó óvenjulangann tíma að drekka drykkinn sinn, þar sem þetta var eiginlega bara tequila..en svo förum við að dansa á fullu og mér verður svona svakalega bumbult... læðist inn á klósett á þessum fína klúbbi og gubba bara og gubba,, ég orðin svo helvíti full og búin að borða yfir mig,, skil ekki samsetninguna sjálf... hljóp náði í veskið mitt og út af staðnum, skildi Róbert eftir og náði mér í leigubíl.. Eftir að ég kom heim, hætti ég bara ekki að kasta upp, eftir allt saman held ég að Róbert hafi kannski bara sjálfursett eitthvað í mitt glas.. eg var komin heim KLUKKAN HÁLF EITT ég var nýfarinút! alger auli..,m jæja ég kom mér í háttinn enn í djammfötunum, eftir að hafa verið úti á lífinu í minna en klukkutíma.. steinsofna,, og vakna við þessi svaka læti í arnold. þar sem hann stekkur fram úr og öskrar bara það er æla í rúmminu... hmmm ég var ekki svo full! trúði ekki að ég hafi hreinlega bara gubbað í rúmmið án þess að hafa vitað af því (ekki að það hafi ekki gerst áður en þá var ég 16 ara!!) hann hleypur inn á bað og kemur inn aftur með smá pappír... þá hafðí litli Teddi gubbað öllum sveppunum úr réttinum sem ég hafði búið´til fuyrr um kvöldið, greyið kallinn var ekki að meika niðursoðna sveppi.. en var fyrir vikið illa böstuð fyrir að hafa gefið honum brauðrétt., þar sem arnold er alltaf að skamma mig og tuða í mér fyrir að gefa honum okkar mat en ekki hundamat...ojjj.., það voru samt sveppir út um allt og arnold að þrífa í nót hehe:) mjög gaman,,, ég ætla allavega ekki að djamma í kvöld...:) þar til næst misses and kisses..hillan sín

» 9 hafa sagt sína skoðun

14.09.2006 05:50:26 / Miss Hill

Þetta er að vera gugga!

Ertu brún? Ferðu ekki út fyrir hússins dyr án þess að mála þig? Ertu með heillitað hár? Áttu sléttujárn? Ertu með sílikon eða planarðu að fara í aðgerð? Er skylda að horfa á Americas Next Top Model? Finnst þér Paris Hilton æðisleg? Fór Silvía Nótt í taugarnar á þér fyrst þegar hún kom á skjáinn en dýrkaru hana núna? Hefurðu farið í þrísom? Setið fyrir í BB? Ertu með naflalokk? Elllskaru Friends og Sex and the City og Barchelor? Drekkurðu marga lítra af Diet Coke á dag? Reykirðu Salem Lights? Ferðu í plokkun til Birtu? Æfirðu í World Class? Hefurðu keppt í Fitness? Farið í fegurðarsamkeppni? Ertu með gelneglur? Ertu stundum með 15 glugga opna á msn? Djammarðu til að lifa, lifirðu til að djamma eða bæði? Eru feministar ljótir og kvenréttindi fyrir feitar konur? Ertu fastakúnni á Smart? Oliver? Rex? Ef þú svarar öllum þessum spurningum játandi þá eru 100% líkur á því að þú sért svokölluð Gugga, kvenhnakki, diskógella eða afsprengi klámkynslóðarinnar, sem er nýjasta heitið yfir blessaðar Guggurnar. Þróun Guggu Guggan er vissulega kvenhnakki með meiru. Hennar blómatími er á árunum milli 18 og 25 en eftir það dregur hún sig vanalega í hlé eða fer að einbeita sér að öðru en djammi. Stundum kemur það þó fyrir að Guggan heldur áfram í djamminu og þá bíða hennar vanalega annaðhvort fitusog, meðferðir og margar misheppnaðar sambúðir eða flutningur til útlanda sem endar á því að hún kemur heim tíu árum síðar með próf í förðunarfræðum upp á vasann og sögur af poppurunum sem urðu vinir hennar. Ómenntuð Þar sem karlafar og djamm eiga hug Guggunnar allann, þá hefur hún ekki mikinn tíma til að mennta sig. Viðhald brúnku, eða “tans” eins og þær kalla það, krefst útgjalda og það sama má segja um einkaþjálfunina, Diesel gallabuxurnar, gelneglurnar, strípurnar og allt það. Guggan eeeellskkarrr líka útlönd og er vanalega með plön um ferðalög einhversstaðar á listanum. Löndin sem verða fyrir valinu eru London, New York, LA og einhverjar sólarstrendur á Spáni. Working girl Allar Guggur dreymir um að verða annaðhvort verlsunarstjórar í tískuvöruverslunum, flugfreyjur eða förðunardömur með karríer. Fæstar komast samt í þessi störf þar sem þau eru náttúrlega ekki á hverju strái. Þá láta þær sér duga önnur djobb sem borga vel og eru tiltölulega auðveld. Guggur vinna til dæmis aldrei á elliheimilum eða leikskólum. Djísuss nei oj, skeina rassa!! Frekar vinna þær á síma einhversstaðar, hjá tryggingarfyrirtækjum eða aðrar hreinlegar vinnur sem bjóða upp á að hægt sé að snyrta gelneglurnar á meðan. Faðernismál Margar Guggur eru einstæðar mæður. Þá gera þær yfirleitt sitt besta til að sinna barninu en yfirleitt er það samt ansi mikið fyrir. Ef pabbinn er búinn að viðurkenna faðernið má koma því fyrir hjá honum, eða ömmu og afa eða öðrum ættingjum. Guggur borga ekki fyrir pössun af því þær eiga ekki fyrir henni. Gelneglur kosta. Uppeldisaðferðir Guggunnar eru grundvallaðar á sjónvarpi, tölvuleikjum og pasta með tómatsósu. Svo lengi sem unginn er ekki með of mikið vesen þá dugar það sem góð uppeldisaðferð að mati Guggunnar. Framhaldið... Eins og fyrr detta flestar Guggur úr Guggugírnum upp úr 25 ára. Þá fer þeim að líða meira eins og Bridget Jones en Paris Hilton. Það fer að vanta eitthvað meira í lífið og brúðkaupsþátturinn JÁ fer að tala meira til þeirra. Kannski að það sé kominn tími á að slappa aðeins af? Fókusera meira á sófann, kæró og kósí kvöld með kertum, kóki og kartöfluflögum. Fitna svo, grennast, fitna, grennast, verða ólétt, fitna, grennast, fara í átak, fara í Vikuna, verða fitt, giftast, hætta í ljósum, fara í skóla... The End Byrjendagræjur fyrir verðandi Guggu:

 Föt Leðurstígvél Diesel gallabuxur Þröngur fleginn toppur Stórt belti með semelíusteinum eða öðru skrauti Allskonar glingur úr Kiss eða Ice in a bucket Stutt þröng úlpa með loðhettu Smink Brúnkukrem, brúnkukrem og aftur brúnkukrem Meik Gloss, gloss, gloss og meira gloss Highlight á kinnbeinin Smokey förðun í kringum augun Dior show maskari til að ná fram Völu Matt augnahárum Tónlist RogB (en ekki hvað?) Maria Carey Justin Timberlake 50 cent Kiss FM FM 95,7 …og allt sem er hægt að dilla sílóinu og rassinum við. Bíómyndir Allt með Jennifer Aniston Legally Blond Einhver soft klámmynd á DVD Clueless Kill Bill (af því það er töff að segjast fíla hana) Allar rómantískar gamanmyndir Note Book (út af Ryan Gosling) ...að lokum Bridget Jones Bækur Eh? Húsgögn Kósí sófi Glerborð Stórt sjónvarp Amerískt rúm Ikea, Ikea, Ikea Bíll Yaris eða Polo Dót Egg Lappi I-pod Gemsi fullur af drasli


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.09.2006 03:17:51 / Miss Hill

Léglegasti bloggari í sögu Bloggs....

Jæja,,, núna er kominn tími til að bæta sig!... þetta gengur ekki lengur, enda skal ég taka mig á og biðja strákana hjálpa mer að setja myndir inná bloggið svo þeir geri nú eitthvað gagn á þessu heimili...! Við eigum helling af skemmtilegum myndum af hinum og þessum atburðum...!

Nú er alvaran tekin við og maður er bara á fullu að læra, þó það nú væri að það er kominn tími til..! maður er að vakna klukkan sex á morgnana, og mættur átta,, er þetta eðlilegt??? Ég á soldið erfitt andlega og líkamlega svona á morgana, en meistari allra meistara mun vera hann Róbert Róbertsson.. hann á soldið erfitt með að vakna og fer út í bíl í eyðum að leggja sig. en þó ekki jafn fáranlegr og Arnold sem er farinn að tala upp úr svefni á ensku, það er ógeðslega fyndið, þegar gæinn nöldrara einhverjar tölur og hvað hann er að fara gera eins og hann sé í hörkusamræðum á ensku,, svona "had to be there" moment... Ég er náttúrulega svo sniðug ég stilli klukkuna alltaf klukkan fimm, en emdar alltaf með snoozi! mín ætlar sér nefnilega að fara í ræktina á hverjum morni...auli! Ég bæti það þó upp á daginn...

Hún Íris okkar innilega Ósk er að koma bráðum, daman ætlar að dvelja með okkur fram að jólum, sem þýðir auðvita að hún kemur aftur um leið og hún er búin að opna pakkana..!:) það á eftir að vera svooo gaman hjá okkur sæta!!!.,., meira segja ætlar íris hervör kannski að slást til í för með henni og koma í smá frí...!

Ég breytti þessari skoðanakönnun, flestir segjast ætla að koma bráðum í heimsókn og ég er engann búinn að sjá neitt af viti hérna nema Birki og Tinnu., þannig þetta var bara illa léglegt,, ég var að skoða fyrri könnun um hver væri mesta guggan., og eiunhverra hluta vegna fékk ég flest atkvæðin (ég gruna stelpurnar, og eg held að Bobby sé mesta guggan) þannig ég ákvað að endurtaka þetta og hvet alla til þess að taka þátt, einnig ætla ég að finna pistilinn góða um guggurnar við fyrsta tækifæri, sem mun  vera skildulestur, til að skilja guggutungumálið... rifjum þetta aðeins upp, mín er ekki alsátt við niðurstöðurnar..


Jæja eg ætla að fara gera eitthvað af viti hérna.. ég lofa að vera mega dugleg að koma með slúbba og myndir,, enda vil´ég líka fá skemmtileg komment í staðinn...!

ps. vill einhver senda mér eitt stykki línubát frá hlölla mínus tómata og pipp!!!

Miss Hilda out-eeeee:P kiss kiss


» 8 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 10:03:48 / Miss K

Laus úr viðjum vinnunnar!!!

JÍHAAAA........shitt hvað þetta er góð tilfinning að vera að hætta í vinnunni.....úfff ég ákvað að segja upp í dag því þetta var einum of rólegt fyrir krissu :haha::haha: sem á svolítið erfitt með að sitja og spila bubbles í 8 tíma á dag ...5 daga vikunar í 8 fokking vikur.....enda var ég að verða vitstola á aðgerðarleysi. Núna tekur bara við leit að einhverju bitastæðu og sem inniheldur meiri hasar!!! Svo skráði ég mig í fjarnám heilar 17 einingar sem byrjar einhverntímann í september. Þannig að maður deyr nú ekki ráðalaus.. en kannski úr elli :haha::haha: Svo fer að líða að ammælinu mínu jeij planið er að fara upp í bústað allar stelpurnar að grilla, leika og drekka...aðallega drekka samt enda er maður að halda uppá 22 ára ammælið (hehemm) jæja kids ætla að halda áfram að gera ekki neitt þar sem ég hætti ekki fyrr en...... vonandi ekki seinna en á fimmtudag....
Svo er gott plan fyrir næsta laugardag þá verður haldið síðasta grill sumarsins heima hjá Írisi og jafnvel farið í pottinn og svona kósý......en pælið í því sumarið er búið.....hvenær byrjaði það???
en þangað til næst bæjó...kv. K

p.s ekki vera svona löt að kvitta í gestabókina :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

11.08.2006 13:40:10 / Miss K

Þú sem átt svartan bíl og varst í ártúnsbrekkunni í síðustu viku þú ert fífl!!!

Góðan dag gott fólk :)  Ég get ekki lengur orða bundist með umferðarómenninguna hér á landi og ætla því að koma með sanna sögu sem ég lenti í fyrir nokkrum dögum.

Ég var að keyra úr vinnunni og er á beygju ljósunum efst í ártúnsbrekkunni og tek eftrir svörtum golf við hliðina á mér......svo bruna ég bara niður brekkuna í mestu makindum slefandi í hundraðið.......rétt áður en ég kem að ljósunum á grensás kemur þessi svarti á fullri ferð og tekur fram úr mér og kemur sér fyrir framan mig........áður en ég vissi af horfi ég á þetta líka smekklega FOKK merki sem mér var gefið si svona......beint í feisið.....er þetta  kurteisin  sem fólk elst upp við eða ??? ég svínaði ekki einu sinni fyrir manninn (drullupumpuna) eins og ég kýs að kalla svona fífl. Ég hefði samt eiginlega viljað eiga svipinn sem ég setti upp á vídjói hehe hneykslunin var þvílík :^):^) 

Jæja úr einu í annað.......nú fer að koma að vali fyrir haustönnina enda stefni ég á fjarnámið í vetur eitt ár í skóla og svo haust 2007 nuddnemi í nuddskóla Íslands :haha::haha:  eftir það fer maður að raka inn peningum össss ætli það verði ekki bara vor 2009 einbýlishús á arnarnesi og porche jeppi.......hmmmm maður spyr sig??

Á menningarnótt ætlar hún systir mín að heiðra mig með nærveru sinni :) enda langt síðan við gerðum eitthvað saman og komin tími til.  Spurning um að tengja  Sing starið og sýna söngóhæfileikann í öllu veldi?

Í kvöld ætla ég að grilla rif og drekka rósavín ( skál fyrir þig Bobby) og kíkja létt á lífið vona að þið eigið góða helgi og sýnið tillitsemi í umferðinni :) kv. Kriss Kross Crazy





» 3 hafa sagt sína skoðun

08.08.2006 11:21:12 / Miss K

Helgin búin:(

Ó mæ gudness hvað það var erfitt að vakna í morgun:cry::cry:  Ég hefði alveg gefið nokkrar tær eða fingur fyrir að fá að sofa aðeins lengur.......og þessi vinnuvika er bara 4 dagar thank god :haha:  Ég vona að allir hafi fundið sér eitthvað til dundurs helgina sem var að líða......allavega hafði ég það stórfínt í sveitinni.  Skelltum okkur til Hafnar á föstudaginn og tekið var á móti okkur með rjúkandi kjötsúpu....mmmmm ekki amalegt það svo á laugardeginum fórum við inn í Þveit að veiða og var ég nú nokkuð sigurviss enda með stöngina hans pabba sem hann fékk þegar hann var 12 ára.....tengdapabbi skaut okkur báðum ref fyrir rass og veiddi 2 silunga...Jón 1.....Kristrún 0 :^):^) kenndi ég spúninum algjörlega um.......enda ekkert að kasttækninni minni hehe Á sunnudeginum fengum við fínasta veður og sat ég úti í nokkra tíma....og á mánudeginum ennþá betra veður  alveg glampandi sól og heiðskírt og mín dreif sig út að nota sólina sem mest og árangurinn lét ekki á sér standa.....nú er ég alveg VEL svínsbleik á bringunni og andlitinu :evil::evil: 
Held að þetta hafi verið ódýrasta verslunarmannahelgi sem ég man eftir......náði kannski að eyða svona 2000 kr geri aðrir betur vúhúú

Gullkorn vikunnar: Ég og Jón vorum að keyra austur og sá ég þennan litla sæta bústað standa á svolítið opnu svæði( engin tré í grenndinni aðallega möl í kring)  og ég bara nei vá voða er þessi flottur á því að fljúga bara að bústaðnum sínum!! Jón leit á mig alveg " elskan mín þetta er flugvöllur, og bústaðurinn er lítil flugstöð:haha::haha:
Hafið það gott í  dag og kossar og knús til Hillu og Bobby miss u 2 kv. K



» 1 hafa sagt sína skoðun

03.08.2006 12:07:57 / Miss K

Er fólk farið að sakna mín??

Dauði og djöfull ég var búin að rita hér langan og hnyttinn texta nema það eina sem birtist var fyrirsögnin.............en svona er þetta stundum og ekkert við því að gera en að byrja upp á nýtt.  Jæja ég vona að fólk sé ekki orðið vitstola yfir bloggleysinu mínu hehe enda ætla ég að bæta úr því hér með......hmmm ok fór á 10 ára reunion úr gaggó fyrir nokkrum vikum sem var alveg geggjað og gaf ég ekkert eftir á barnum með screw driver í annarri haldandi í barborðið með hinni...aðeins meira fyrri daginn en seinni.  Svo er ég búin að fara upp í bústað til pabba gamla að kíkja á herlegheitin enda kallinn handlaginn með meiru og búin að setja upp heitan pott og byggja lítið hús fyrir sturtur......hlakka til að eyða nokkrum helgum þarna næsta sumar:haha::haha: 

Næst á dagskrá er versló og ætla ég ekki að liggja úti þessa helgi heldur í upphituðu herbergi á Höfn og keppa í veiði........segi frá verðlaununum um leið og ég er búin að hreppa hnossið. Svo fer að líða að menningarnótt sem mér finnst vera óformleg lok á sumrinu og haustið farið að læða sér að.  Ætli ég haldi ekki SING star partý fyrir eitthvað gott fólk þá helgi...........plana það later  jæja læt þetta duga í bili og keyrið varlega adios K  

» 6 hafa sagt sína skoðun

26.07.2006 17:32:10 / Miss Hill

Hilla auli

Jæja ég ætlaði nú að vera löngu búin að uppfæra síðustu færslu þar sem ég datt út og gat ekkert klárað... hmm,.. ég átti afmæli á laugardaginn og við fórum nokkur saman fínt út að borða og lítil glöð stelpa fékk að sjálfsögðu sushi.. þetta er merkilegt´.. ég kem eiginlega engu ofaní mig nema sushi og jú auðvita smá tacon bell...:) í gær var ég aftur í Entourage.. rosa gaman,, ég er bara pappakassi sem sést eiginlega ekki neitt, og verð sennilega líka svoleiðis í Oceans 13... en Jeremy fyrir þá sem vita hver er í entourage bauð mér askvaðandi í afmælið sitt á sunnudaginn,, Hildur auli þorði ekki að mæta, þannig ég fékk alveg að heyra það í gær egar maðurinn hringir í mig og segir mér frá þessari svaka veislu, svakalegt party með hundruð manna og fræga fólkinu og helling að fólki sem var á gestalista sem komust ekki inn...:$ hehe,, maður sleppur ekki svona tækifærum aftur,en svona er þetta,, enda var ég bara þunn á afmælisdaginn.... ALGER AULI

í dag er ég að fara í skólann :) víí að gera stundatöfluna mína, ég fæ alveg sting þegar ég fer á campus að skoða ég hlakka svo til... Ætlar enginn að koma hingað í heimsókn HALLO:(:(??

jæja ég ætla að fara skokka og gera eitthvað svo ég hafi meiri sögur að segja:) 

og Miss K... hvar eru þínar færslur,,engar fréttir??  

Later...;)

Hilla


» 8 hafa sagt sína skoðun

21.07.2006 23:49:02 / Miss Hill

Askvadandi...

Haldidi ad thad se!! stelpan er nuna as we speak ad leika einhverja skrifstofukonu i thaetti sem heitir Entourage.. held ad hann se syndur a stod 1 heima veit ekki, eg hef sjalf aldrei sed thattinn, een thetta er bara skemmtilegt og spennandi.. allskonar fraegir leikarar.... en svo heppilegt ad tolvan sem eg er med herna er bara netengd, svona lika luxus,,, i gaer for eg i "fitting" fyrir oceans 13... fataskapurinn hja warner brothers er staerri en kringlan, thar voru bara 4 konur ad snuast i kringum mig og lata mig mata allskonar fot, sko, toskur, skartgripi og flottustu kjolana sko:)

» 5 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 19:19:33 / Miss Hill

ljúfa líf ljúfa líf...

Þetta er nú ljúfa lífið... allavega þangað til skólinn byrjar en það er enn meira en mánuður þangað til:) Arnold er bara á fullu að vinna á meðan ég sinni heimilinu og Tedda, auðvita Róbert líka... ég hef nú hingað til ekki verið mjög góð á þvottavélarnar, þar sem Arnold hefur verið þvottakonan á mínu heimili hingað til og þar áður mamma, (jú auðvita geri ég eitthvað í staðinn og brýt saman og svona) en já ég var svo góð í mér að taka heila fjallið hérna og þvo og taka af rúminu og þvo það líka hérna einn daginn, en viti menn,, ekki voru fötin bara öll út í einhverjum blettum heldur var fjarstýringin af sjóvarpinu líka í þvottafélinni, hrein og fín, þá hafði hún lætt sér með í hreingerningu.. ég er alveg ómöguleg í þessum málum, samt gerði ég alveg eins og Arnold gerir...8|

En já annars allt gott að frétta,., greyið Róbert er alveg að fá nóg af okkur Arnold, við erum alltaf eitthvað að atast í honum hehe:) við fórum á rosa fínann Sushi stað í Laguna á miðvikudaginn, (ég er komin með æði fyrir sushi)  Við Róbert bruðgðum okkur frá borðinu í 5 mínútur og þegar við komum aftur, þá héldum við áfram að borða og Róbert að drekka sitt rauðvín.. Hver veit ekki hvað wassabi er? það er þetta græna sem þið setjið á sushi og ógeðslega sterkt... nei nei þá höfðu krakkarnir sett stóra slummu af þessu í glasið hans... og hann drakk og drakk og í endann fannst honum þetta eitthvað skrýtið, (og langt á undan því var búið að setja hala af rækju ofanæi sem hann fann heldur aldrei fyrir..) Róbert greyið kvartaði yfir fína víninu sínu og að lokum fékk hann nýtt,, en hann veit held ég ekki enn hvað var í glasinu,,en jú elskan mín þú kemst að því um leið og þú lest þetta.. enda er eg hætt að stríða honum núna...  Hann sefur og sefur endalaust... klukkan er korter yfir tólf og hann er bara sofandi ennþá, illa pirrandi... ég var einu sinni svona...:):)

jæja eg ætla að fara sparka í rassinn á honum,,,

Later

Hills


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
8. febrúar 2012